Helgin 5 og 6.maí
4.5.2012 | 19:26
Um helgina er margt að gerast á dagskrá Listar án landamæra
Á Laugardaginn er opnunarhátíð á Austurlandi. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá á sviði, kaffi, sýningar og leiksýning um kvöldið. Kíkið á dagskrána í dagskrárbæklingnum eða í skránni sem er í viðhengi með þessari færlsu.
Brúðkaupsdraumur í Frumleikhúsinu
og fjölmenningardagur í Duus húsum í Reykjanesbæ.
Tónstofan í Hörpu
Tónstofa Valgerðar býður uppá tónleika í Hörpuhorninu, laugardaginn 5. maí kl: 15:00 (3). Hörpuhornið er staðsett á annarri hæð við hliðina á Eldborgarsalnum.
Á tónleikunum leika nemendur Tónstofunnar. Bjöllukórinn, einleikarar og söngvarar munu flytja íslensk og erlend þjóðlög, dægurlög og klassíska tónlist.
Smiðja í Norræna húsinu
Listamaðurinn Magnús Helgason mun leiða nýstárlega smiðju ætlaða allri fjölskyldunni í tengslum við sýninguna Fólk í mynd. Á smiðjunni skoðum við okkur sjálf og myndina af okkur. Smiðjan er opin 12.00-16.00
Fjöldi sýninga er opinn um allt land!
Nál og hnífur og 8 heimar í Þjóðminjasafninu
Við Suðumark í Listasal Mosfellsbæjar
Fólk í mynd í Norræna húsinu
Ásgeir Valur í samtökunum ´78
Lækjarlitir í Kaffi Aroma
Hlutskipti/Hugskeyti í Vin
Sýning í Hofi á Akureyri
Njótið helgarinnar!