Nokkur orð um hátíðina 2009
25.6.2009 | 13:22
Þátttakendum fjölgar með hverju ári. Í ár voru fleiri bæjarfélög með atburði á dagskrá en nokkru sinni fyrr. Það er vel og vonandi að bætist enn í hópinn fyrir næsta vor enda hefur áhugi á þátttöku vaxið með hverju ári. Það á einnig við um ófatlað listafólk, tónlistarfólk og forstöðufólk gallería. Á dagskránni í vor voru yfir 50 liðir á dagskrá en atburðir voru á höfuðborgarsvæðinu, Egilsstöðum, Vestmannaeyjum, Sólheimum í Grímsnesi, Ísafirði, Ólafsfirði, Siglufirði, Borgarnesi, Svalbarðsströnd, Akureyri og á Húsavík.
Af atriðum á dagskrá má nefna samstarfssýningu sex listamanna í Listasal Mosfellsbæjar. Sú sýning bar heitið Lennon og Baktus, sem tákna e.k. ´´Odd couple´´ eða óvenjulegt par og fyllti listafólkið salinn af listaverkum. Kór Orkuveitunnar og sönghópurinn Blikandi Stjörnur stilltu saman barka sína og sungu á opnunarhátíð í Iðnó. Á Mokka var sýningin Sápukúlur í samstarfi tveggja listamanna, stór samsýning var í Ráðhúsi Reykjavíkur og Geðveikt kaffihús og handverksmarkaður í Hinu Húsinu. Þrjár sýningar voru í Safnasafninu á Svalbarðsströnd en meðal annars reis þar risavaxinn safnvörður á bílastæðinu og mun hann standa þar til frambúðar. Grænlenskt þema var áberandi á Akureyri þar sem nýtt tónverk var flutt og myndlistasýningin Norðurheimskautið var í Amtsbókasafninu. Fjölbreytt list var sýnd í Fjallabyggð og geðveikin laumaðist í kaffið á Húsavík. Á Egilsstöðum var listahátíð í Sláturhúsinu sem skartaði m.a. leiksmiðju, listasmiðju og fuglagerð. Í Borgarnesi sýndi Outsider art hópurinn í Landnámssetrinu, á Ísafirði var lystaukandi listkaffihús og í Vestmannaeyjum var skemmtileg sýning samhliða opnun fjölskylduhelgar. Það iðaði sem sagt allt af lífi um allt land en ofangreindir atburðir eru eingöngu brot af því sem var í boði.