Þátttakendur óskast
14.3.2007 | 16:23
Sæl og bless öll.
Undirbúningur hátíðarinnar stendur nú sem hæst. Á dagskrá eru fjölmörg skemmtileg
og áhugaverð atriði. Meðal annars er leiklistarveisla í Borgarleikhúsinu, Stuttmyndakeppni, Geðveikt kaffihús, handverksmarkaður,myndlistasýningar í Norræna Húsinu, Hafnarborg, Mokka og í Ráðhúsinu. Tónleikar í Salnum, ljóðakvöld,Átakskvöld, dagskrá verður á Akureyri og Selfossi og jafnvel á Egilsstöðum. Margt fleira er einnig á dagskrá.
-
- Það er enn pláss í dagskránni fyrir sýnendur, bæði einstaklinga og hópa.
-
- Það er pláss fyrir eitt atriði í Borgarleikhúsinu
en þar sýna, Perlan, Þjóðarsálin, Halaleikhópurinn, Blikandi Stjörnur og Danshópur Hins Hússins
-
- Það er enn pláss fyrir sýnendur á samsýningu í Ráðhúsinu.
-
- Kjallari Hins Hússins er bókaður fyrir List án landamæra laugardaginn 5 maí og það er ekki komin nein dagskrá þar. Helgina á undan verður Geðveikt kaffihús. Áhugasamir með góða hugmynd mega gjarnan nýta sér plássið.
-
- Ljóðskáld óskast á ljóðakvöld.
-
- Handverkssýning og markaður verður laugardaginn 28.apríl í Hinu Húsinu. Bjarkarás og Skálatún munu sýna og selja þar muni en pláss er fyrir fleiri hópa og einstaklinga
-
Endilega hafið samband ef þið hafið áhuga á þátttöku.
Nýtt símanúmer Listar án landamæra er: 691-8756
Bestu kveðjur, Margrét M. Norðdahl