Austfirðingar og Héraðsbúar

IMG 3901 066 043

GLEÐILEGT ÁR KÆRU VINIR!

 Við hefjum nýja árið á kynningar og spjallfundi á Egilsstöðum.

Frábær hópur listafólks og skipuleggjenda hefur staðið fyrir viðburðum á Austurlandi síðustu ár. Gaman væri ef fleiri bættust í hópinn ; ) Endilega bregðið ykkur af bæ og kíkið á fund á morgun!

Fimmtudaginn 5.janúar klukkan 11 verður fundur í Sláturhúsinu menningarmiðstöð á Egilsstöðum.

Fundurinn er hugsaður til hugarflugs, umræðna og skoðanaskipta um
hugmyndir fyrir hátíðina 2012.
 
Á fundinum verður farið yfir hvað hefur verið að gerast. Hvað liggur fyrir í vor?
Og síðast en ekki síst: Hvað vilja þátttakendur og skipuleggjendur sjá gerast.
 
Við leitum að atriðum og þátttakendum, til þátttöku í hátíðinni 2012.

Listafólk, aðstandendur listafólks, listnemar, leiðbeinendur, gallerýrekendur, leikhússtjórar, tónleikahaldarar, hugmyndasmiðir, smiðir  og aðrir sem áhuga hafa eru sérstaklega hvattir til að mæta.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband