6.12.2011 | 10:52
Opinn fundur um List án landamæra á Vesturlandi, mánudaginn 12.desember
Kæru vinir
Opinn fundur verður haldinn Á Akranesi, mánudaginn 12. Desember frá kl.11-12.
Staðsetning: Stillholt 16-18, fundarsalur á 3.hæð
- List án landamæra er Listahátíð sem haldin er einu sinni á ári. Þar er pláss fyrir allskonar fólk og allskonar atriði.
- Fundurinn á mánudaginn er hugsaður til hugarflugs, umræðna og skoðanaskipta um
hugmyndir fyrir hátíðina á Vesturlandi 2012.
- Á fundinum verður farið yfir hvað hefur verið að gerast. Hvað liggur fyrir í vor?
Og síðast en ekki síst: Hvað vilja þátttakendur og skipuleggjendur sjá gerast.
- Við leitum að atriðum og þátttakendum, fötluðum og ófötluðum til þátttöku í hátíðinni 2012 sem hefst 18.apríl 2012 og stendur yfir í um tvær vikur.
- Listafólk, aðstandendur listafólks, listnemar, leiðbeinendur, gallerýrekendur, leikhússtjórar, tónleikahaldarar, hugmyndasmiðir, smiðir og aðrir sem áhuga hafa eru sérstaklega hvattir til að mæta.
Kær kveðja
Margrét M. Norðdahl, framkvæmdastýra Listar án landamæra
Netfang: listanlandamaera@gmail.com
Símanúmer: 691-8756












Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.